Velkomin(n) á Köttarar.net

Notendur
Hæ, Gestur
MP3 Spilari
MP3 Spilari.

Köttarar.net hættir

05.07.2010 - 23:22 eftir Geiri 0

Nú er komið svo að vegna lítillar umferðar, og lítilla skrifa á Köttarar.net hefur verið ákveðið að loka síðunni.  Síðan hefur verið starfandi í rúmlega tvö ár, og mikið hefur breyst síðan síðan opnaði fyrst.  Í fyrstu voru oft miklar og kröftugar umræður á síðunni, en það fór að minnka eftir því sem lengra leið.  Undir restina var svo komið að flettingar á síðunni höfðu minnkað töluvert, og mjög litlar umræður og fá komment komu inn á síðuna. 

Þess vegna höfum við ákveðið að loka síðunni, og framvegis munum við skrifa um leikina inni á Þróttarasíðunni.  Köttarar fá svo fljótlega sér dálk inni á Þróttur.is, og munum við reyna að vera duglegir að uppfæra það.

Köttarar.net þakkar samstarfið á síðustu árum, og við vonum að þið verðið dugleg að kíkja á Þróttarasíðuna, og opna á ykkur munninn þar, og tjá ykkur um það sem þar fer fram.

Með Köttarakveðju.

LIFI ÞRÓTTUR!!!

Ágætis veður var í Laugardalnum í kvöld þegar leiknismenn kom í heimsókn.  Lið Þróttar var þannig skipað að Halli var í markinu, með þá Eystein, Ingvar, Dusan og Birki fyrir framan sig.  Á miðjunni voru Hallur og Mummi, Höddi og Oddur voru á köntunum og Hjörvar var fremstur með Dóra rétt fyrir aftan sig.

Leikurinn byrjaði ágætlega, og Mummi komst einn í gegn eftir um 10 mínútna leik, eftir gott samspil í gegn um vörn Leiknismanna.  Mummi náði skotinu sem endaði rétt framhjá.  Ekki gerðist mikið á vellinum eftir þetta, nokkur hálffæri, en ekkert sem vert er að tala um.  Mikil barátta á miðjunni, og lítið af færum.  Liðin fóru því jöfn inn í búningsklefa í hálfleiknum með stöðuna 0-0.

Húrra fyrir Ása Haralds!

03.06.2010 - 22:55 eftir JonOlafs 2

Ásmundur Haraldsson, fyrrum Þróttari og nú þjálfari Gróttu sýndi drenglyndi mikið í kvöld í kjölfar fyrsta mark leiksins. Stormsentir Gróttumanna skoraði þá glæsilegt mark eftir mikinn einleik gegn ráðvilltum varnarmönnum Þróttar sem áttu alls ekki von á þessum tilþrifum drengsins. Skömmu áður lá piltur í grasinu og Þróttur var með boltann. Dómarinn stöðvaði þá leikinn og þegar hann lét knöttinn falla í jörð í dómarakasti tók fyrrnefndur miðherji sig til og sýndi líka þessi gríðarlegu tilþrif. Undrunarsvipur Þróttara, dómarans og ekki síst samherja hans í Gróttu höfðu engin áhrif og eftir gott skot hans var staðan 0-1.  Stuðningsmenn Gróttu fögnuðu markinu ekki og það gerðu félagar sökudólgsins inni á vellinum ekki heldur. Eysteinn Pétur trompaðist og uppskar gult spjald. Algjör farsi á vellinum; segi og skrifa.  Og þá gerðist það. Eitt fallegasta atvik íslenskrar knattspyrnusögu!  Ásmundur Haraldsson kom hlaupandi að hliðarlínunni og gaf Gróttumönnum fyrirmæli. Þegar Þróttur tók miðjuna færðu Seltirningar sig frá og buðu Halldóri Hilmissyni að hlaupa upp miðjan völlinn og meira að segja markvörðurinn lét sig hverfa þannig að Dóri gat rennt boltanum í netið án þess að nokkur reyndi að stöðva hann, 1-1 og þar með lauk þessu gamanleikriti.  Áhorfendur felldu tár og klöppuðu Gróttumönnum og þjálfara þeirr lof í lófa fyrir drenglyndið mikla. Skömmu síðar var flautað til leikhlés.  Þróttarar voru mun sterkari í fyrri hálfleiknum en gekk illa að komast í dauðafæri. Hinsvegar áttu Gróttumenn þrjú dauðafæri í sömu sókninni þegar leikurinn var nýhafinn en Haraldur markvörður varði allt sem á markið kom. Í síðari hálfleik komu heimamenn tvíefldiir til leiks og þegar um hálftími var eftir skoraði Andrés Vilhjálmsson frábært mark með skoti fyrir utan vítateig sem hafnaði í þverslánni og þaðan skaust boltinn inn fyrir marklínuna, 2-1.  Tíu mínútum fyrir leikslok átti svo varamaðurinn, Oddur Björnsson, afbragðsgóða fyrirgjöf og Halldór Hilmisson renndi sér í knöttinn sem endaði í markinu, 3-1 og þetta urðu lokatölur leiksins. Þróttur var sterkari aðilinn í skemmtilegum leik en Gróttumenn eru með lipra menn inn á milli og áttu eitt frábært skot sem stefndi í mark Þróttar en enn og aftur sýndi Haraldur mátt sinn og megin og varði skotið alveg út við stöng.  Hvalreki á okkar fjörur. Ingvar Ólason var í vörninni í stað Helga P sem þurfti til útlanda og átti Ingvar frábæran leik og kom með mikla yfirvegun í liðið. 
Maður leiksins: Ásmundur Haraldsson, þjálfari Gróttu.

Könnun
Nýja útlitið betra en það gamla?
Nei
Hlutlaus
Tengdir notendur
US 38.107.x.x
US 38.107.x.x
US Google spider
 

Köttarar.net © 2008-2010 - Stjórnborðið
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon

Forsíða | Um Vefinn | Veftré | Hafa Samband
Orkað af MemHT Portal